31.01.2012 05:36

Lækningasamkoma á Höfn

13.12.2011 00:52

Royal Rangers í Öræfum



Í ár byrjuðum við í  Royal Rangers, Öræfum þann 7. september með vikulega fundi og héldum síðasta fund fyrir jól þann 7. desember. Margt var lært og gert, og auk þess unnum við dálítið í samfélagsþjónustu í Öræfasveit, bæði til fjáröflunar og bara af því að okkur langði til þess. Við tókum að okkur verkefni í október að taka til rusl meðfram þjóðveginum milli bæja í Öræfum, og sveitarfélagið styrkti okkur fyrir það, auk þess sem við tókum að okkur að mála yfir veggjarkrot og taka til rusl á gömlu versluninni á Fagurhólsmýri og fengum líka styrk fyrir það, þannig að við gátum greitt niður kostnað krakkanna vegna mótsins í október. Í desember lukum við starfinu á því að færa nokkrum einsetumönnum í Öræfum jólaglaðning, piparkökur og laufabrauð.

30.11.2011 11:03

Aðventan


Gefðu þér tíma á aðventunni til þess að staldra aðeins við, 
kúpla þig út úr amstri dagsins og næra anda þinn með lestri orðsins.

Orð Guðs og andi Drottins gefa þér nýjan kraft sem dugar þér í gegnum daginn.
Kraftur Drottins er varanlegur, byggir okkur upp og styrkir andlega.
Orð Guðs endurnýjar huga okkar og 
Andinn veitir okkur frið sem er æðri öllum skilningi.

Gefðu þér nokkrar mínútur á aðventunni til þess að leiða huga að ástæðu Hátíðarinnar sem er í vændum, Jesús kristi.

Ég hvet þig til að taka þér tíma daglega til að lesa, biðja og hugleiða orð Drottins.

Prufaðu líka að fara í kirkju, ekki bara á aðfangadagskvöld, 
heldur á miðvikudegi, sunnudegi eða einhvern annan dag. 

Leyfðu Guði að tala til þín, mæta þér, hjálpa þér, leiða þig og byrjaðu á því í dag. Hann þráir að sjá þig ganga í gegnum lífið í sigri og gleði, áhyggjuleysi og öryggi.

Í Matteus 11:28 segjir Jesús: " Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld. Takið á yður mitt ok og lærið af mér því að ég er hógvær 
og af hjarta lítillátur og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. 
Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt."
 

29.11.2011 04:13

Kirkjulækjarkot

Í Kirkjulækjarkoti á Hvítasunnukirkjan á Íslandi stórkostlegt svæði 
sem býður uppá marga möguleika. 
Núna er í fullum gangi hugmyndarvinna fyrir aðstöðuna okkar í Kotinu. 

Klikkaðu á linkinn hér að neðan til að skoða myndbrot
 sem gefur þér nánari upplýsingar og innsýn í málið.

Drottinn blessi þig!

14.11.2011 17:19

Gls ráðstefnan 2011

Í nóvember fóru 6 meðlimir kirkjunnar á svo kallaða GLS ráðstefnu sem hefur verið haldin síðustu 3. árin hér á Íslandi. (sjá nánar á gls.is)

Kennslan hreyfði við hjörtum og lífum okkar allra og voru teknar róttækar ákvarðanir á staðnum:)

Næst 3. vikurnar munm við fara yfir helstu punkta ráðstefnunnar með kirkjunni og þaðan setja okkur ný markmið, skerpa hugsjón kirkjunnar sem og stíga enn lengra inn í áætlun Guðs með okkar persónulega líf.

Það er okkar von og þrá að hafa þjónustu kirkjunnar og tilgang hennar skiljanlegan og sýnilegan fyrir öllum. Þannig missum við ekki sjónar á markinu, sem er fyrst og fremst Jesús, en líka leiðavísir um hvert kirkjan stefnir.

Við værum þér þakklát ef þú gæfir þér tíma til að biðja fyrir okkur daglega!
Við finnum hvernig Guð gefur okkur kraft og uppörvun í gegnum bænir þjóna sinna.

Án hjálpar þeirra sem erfiða fyrir okkur í bæninni, værum við ekki blómstrandi kirkja og ljós inní samfélagið.

Þakka þér fyrir að biðja fyrir okkur, Drottinn blessi þig!!

(Við  hvetjum alla leiðtoga til þess að kynna sér GLS!)

13.10.2011 10:31

Biblíukennsla og Mót!

Það var mikið um að vera á Hornafirði síðustu helgi. Lilja Óskarsdóttir var með biblíukennslu frá föstudegi - Sunnudags. Kirkjan átti virkilega uppörvandi helgi og trúarstyrjandi kennslu.

Nýjar myndir í albúmi frá kennslunni:) 
 
7- 9 Okt+ober var  Royal Rangersmót í Öræfum. Þar voru mættir galvaskir krakkar og foringjar úr Royal Rangers á landsvísu. Krakkarnir voru 39 talsins og á aldrinum 11- 16 ára. Alls vorum við 50 manns sem nutum útivistarinnar og þess að vera saman:)

Guð mætti með kraftaverki þar sem Hann lægði veðrið úr 35 metrum niður í logn á augabragði.

Við sáum ekki fram á að komast útúr húsi, en til stóð að fara í Ískilfur kl.13:00

Kl. 13:00 skall á dúnalogn og gátum við klifrað frá - 13:30 - 17:00 í sól og blíðu:)

Guð er góður!!

Börnin stóðu sig eins og hetjur alla helgina, sváfu í tjöldum og notuðu útivask og kamar. Þau borðuðu hafragraut á morgnanna og tóku virkilega þátt í mótinu.

Takk krakkar fyrir FRÁBÆRA helgi!!

Kveðjur Matta og Einar

Kíkið endilega á myndir frá mótinu inná www.royalrangers.is

31.08.2011 00:59

Námskeið um Nýja testamentið

Helgina 29. september - 1. október
verður haldið námskeið í Hvítasunnukirkjunni Lifandi Vatni á Höfn

Námskeiðið er alls 10 kennslustundir

Kennari, Lilja Óskarsdóttir


Á þessu námskeiði rannsökum við Nýja testamentið, nýja samninginn sem Guð gerði við manninn gegnum Jesú Krist. Nýja testamentið segir okkur frá því hvernig Guð bjargaði okkur frá eilífri tortímingu. Það segir okkur hvernig við getum komist í konungsríki hans gegnum Krist og fengið að upplifa kraft hans í okkar daglega lífi. Það lýsir líka endurkomu Frelsara okkar og dásamlegri framtíð okkar í Kristi.

Við skoðum tímann milli testamentana og þann tíma sem Nýja testamentið var skrifað á. Skoðum Guðspjöllin, bækurnar sem segja frá lífi og þjónustu Jesú á jörðinni. Rannsökum bækurnar sem lýsa upphafi kirkjunnar og útbreiðslu hennar um rómverska ríkið og bréfin, sem skrifuð voru til hinna ýmsu safnaða sem spruttu upp og kynnumst gleði þeirra og erfiðleikum, sjáum hvernig kirkjan var stofnuð og henni viðhaldið með krafti Guðs.

Einnig kynnumst við bókunum sem voru skrifaðar þegar kirkjan fór að eflast og breiðast út. Við lesum um það þegar hún mætti ofsóknum frá þeim sem hötuðu hana og villukenningum þeirra sem afneituðu Drottni hennar.

 

Loks athugum við þær leiðbeiningar sem leiðtogum hennar voru gefnar og skoðum framtíðarsýn hennar. Komumst að því hvernig Nýja testamentið komst í okkar hendur og ástæður þess að við getum treyst því fullkomlega.

 

Hver kennslustund er sjálfstæð svo þeir sem ekki geta verið alla 3 dagana eru velkomnir.

Námskeiðið er ókeypis.

 Ef þig vantar gistingu á Höfn þá viljum við benda þér á Gistiheimilið Hvammur. www.hvammurinn.is

 

Dagskrá helgarinnar:

Fimmtudagur 19:30 Lofgjörð
19:45 Kennsla/ Lilja Óskarsdóttir (2. kennslustundir)

Föstudagur 19:30 Lofgjörð 
19:45 Kennsla/ Lilja Óskarsdóttir (2. kennslustundir)

Laugardagur 13:00 Lofgjörð
13:20 Kennsla/ Lilja Óskarsdóttir (2. kennslustundir)
14:45 Kaffi
15:15 Kennsla/ Lilja Óskarsdóttir (2. kennslustund)
19:30 Kennsla/ Lilja Óskarsdóttir (2. kennslustundir)

Sunnudagur 13:00 Samkoma, Lilja Óskarsdóttir talar til okkar. 
   

 



13.07.2011 01:47

Dagskrá Helgarinnar 14-17 júlí



Vikan 14 - 17 Júlí


Dagana 14 - 17 júlí verðum mikið um að vera í Hvítasunnukirkjunni Lifandi Vatn á Höfn.

Drottinn hefur sent þjóna sína alla leið frá Kananda til að þjóna til okkar með söng, kennslu og predikun. Samkomurnar eru öllum opnar og eru þér að endurgjaldslausu.


Dagskrá Helgarinnar:


Fimmtudaginn 14. júlí kl. 19:30 

Lofgjörðar og vitnisburðarstund. Vinir okkar frá Kanada gefa vitnisburði.


Föstudagurinn 15. júlí 

Kl. 13:30 Að líkjast kristi    Kennari: Jack Keys

15.00 Kaffisopi í Jónsbakaríi, Kenneth Jasper spilar nokkur lög í Miðbæ.

20:00 Tónleikar með Kenneth Jasper, 

          Jack Keys talar til okkar, Ísland fyrir Jesú


Laugardagurinn 16. júlí

10:00 Karlastund í kirkjunni. Kennari: Jack Keys

10:00 Konustund í kirkjunni. Kennari: Daisy Keys

12:00 Hádegismatur

13:30 Kennsla: Að líkjast kristi. "Gleði!"     Kennari: Jack Keys

14:30 kaffihlé og samfélag

15:00 kennsla Að líkjast kristi. "kærleikur" Kennari: Jack Keys

19:30 Samkoma Predikun: Jack Keys, 

Yfirskrift predikunnar:  "Guð hvíslar, að hlusta og hlýðann".

 Lofgjörð, Matthildur Þorsteinsdóttir


Sunnudagur 17. júlí:

13:00 Samkoma, Brauðsbrotning. Predikun Jack Keys, 

Yfirskrift:  Brúðkaupssiðir í Gyðingdómi og kvöldmáltíðin

Lofgjörð; Aron Franklín Jónsson



21.06.2011 02:34

Þakklæti

Kæru vinir!!

Við þökkum ykkur fyrir uppörvandi og skemmtilegan tíma í Vestmannaeyjum!!

Guð er svo sannarlega Góður Guð!

Vonandi hittumst við sem oftast í sumar:)

Kærleikskveðjur frá Hornafirði!
    Flettingar í dag: 8
    Gestir í dag: 4
    Flettingar í gær: 28
    Gestir í gær: 14
    Samtals flettingar: 74148
    Samtals gestir: 22997
    Tölur uppfærðar: 9.2.2012 10:20:28


    Kíktu til okkar í vikunni


    Samkomur í vetur

    Sunnudagur 
    Kl: 13:00, 
    Almenn samkoma 
    Lifandi Tónlist, vitnisburðir og predikun


    Fimmtudagur 
    Kl:19:30, 
    Biblíulestur og bænastund
     

    Þér er velkomið að hafa samband!!

    Nafn:

    Hvítasunnukirkjan Lifandi Vatn

    Farsími:

    843 4330

    Afmælisdagur:

    6. febrúar 1990

    Heimilisfang:

    Hafnarbraut 59

    Staðsetning:

    780 Höfn í Hornafirði

    Kennitala:

    5807023330

    Bankanúmer:

    0172 05 009009

    Frelsisbæn

    Hafðu eftir þessa bæn í einlægni:

    Ég trúi því að Jesús Kristur hafi dáið fyrir mig og að Hann hafi risið upp frá dauðum. 
     Jesús ég bið þig um að koma inn í hjarta mitt á þessu augnabliki og frelsa mig frá syndum mínum.
    Laugaðu mig í blóði þínu og fyrirgefðu sérhverja synd mína. 
     Jesús ég býð þig velkominn inn í líf mitt og ég bið þig um að taka þar völdin. 
     Fylltu mig af Anda þínum.Heilagi faðir, ég þakka þér að ég er nú þitt barn.
     Í Jesú nafni - Amen.