19.05.2011 03:18
Rétt eins og fræ fellur í jörðu og upp vex ný planta þá getur nýtt líf og ný von vaxið upp þar sem áður var ekkert að sjá.
Það sem sumir henda getur orðið frábær gróðurmold
og þannig kjör aðstæður fyrir nýtt líf.
Við í Austurland fyrir Krist erum fulltrúar þessa nýja lífs í Jesú Kristi af því að fræ trúarinnar hafa fengið að spíra og vaxa í lífi okkar. Allir hafa tekist á við afleiðingar mistaka og niðurbrots í lífinu - á sama hátt getum við öll upplifað nýtt líf og von ef við leyfum fræjum Guðs ríkis að vaxa einmitt þar sem niðurbrotið átti sér stað.


Skrifað af Matthildur Þorsteinsdóttir